Ættir þú að íhuga rafmagnsbíl sem næsta fararskjótann?
- Talið er að rafmagnsbílar lækki mjög hratt í verði á næstu árum.
- Framþróun tækninnar í rafhlöðum er á fleygiferð og verðið á þeim mun lækka fljótt.
- Árið 2012, eða jafnvel fyrr, mun aðeins taka nokkrar mínútur að full hlaða rafmagnsbíl.
- Mengun er eitt stærsta vandamál sem börnin okkar koma til með að glíma við. Rafmagnsbílar menga nánast ekki neitt. Ekki spillir að raforkan á Íslandi er unnin úr hreinni orku.
- Rafmagnið er margfalt ódýrara en innflutt jarðefnaeldsneyti (bensín og díselolía).
- Olíulindir eru takmarkaðar og verð á olíu og bensíni fer hækkandi.
- Raforka er alls staðar fáanleg nú þegar, ólíkt því sem segja má um t.d. vetni, metan eða alkohól.
- Íslenska þjóðarbúið gæti sparað miljarða á ári í innkaupum á innfluttu eldsneyti ef bílaflotinn væri rafknúinn.
- Rafmagnsbílar eru mun einfaldari í framleiðslu en brunahreyfilsbílar. Viðhald er þ.a.l. mun einfaldara og ódýrara.
- Rafmagnsmótorar hafa aðeins einn hreyfanlegan hlut og rafbílar þurfa aðeins einn “gír”. Slitfletir í rafmagnsbílum eru því margfalt færri, hitamyndun minni og endingin verður því lengri.
- Rafmagnsmótorar eru nánast hljóðlausir og því er hávaðamengun frá rafmagnsbílum nánast engin.
- Rafmagnsmótorar eyða engu rafmagni þegar þeir eru stopp. Bíllinn eyðir því engu þegar þú ert stopp á ljósum, ef frá er talið það litla sem fer í miðstöðina, útvarpstækið o.þ.h.
- Þegar þú bremsar þá er hreyfiorkan nýtt til að hlaða inn á rafhlöðuna. Það er því allt í einu hagkvæmt að stoppa á gatnamótum, þveröfugt við það sem gildir um brunahreyfilsbíla.

