Nokkrir hlutir sem þú vissir (kannski) ekki um rafmagnsbíla
1. Súrál, efnið sem ál er búið til úr, er eitt af hörðustu efnum veraldar. Það er m.a. notað til þess að slípa demanta. Hvað kemur það rafmagnsbílum við? Jú, rafmagnsbílar með riðstraumsmótora eru mikið notaðir í álverum vegna þess að mótararnir eru mjög þéttir og þeir taka heldur ekkert loft í gegnum sig. Þess vegna smýgur súrálið ekki inn í mótorana og skemmir þá.
2. Rafmagnsmótor hefur aðeins einn hreyfanlegan hlut, svokallaðan “snúð”. Venjuleg bensínvél hefur aftur á móti ótal hreyfanlega hluti. Fyrir þessar sakir er framleiðsla rafmótors mun ódýrari og einfaldari, auk þess sem þeir endast mun lengur og þurfa minna viðhald.
3. Þegar mjólk í glerflöskum var dreift í hús á Bretlandi hér á árum áður þá voru oftast notaðir rafmagnsbílar. Þeir voru nánast alveg hljóðlausir og vöktu því ekki íbúana. Þeir voru auk þess hagkvæmir sökum þess hversu oft þurfti að stoppa á milli húsa, enda eyða rafmagnsbílar nánast engri orku þótt svo bíllinn standi óhreyfður í “gangi”.
4. Í olíukreppunni í byrjun áttunda áratugarins reiknaði verkfræðingur í Bandaríkjunum út hversu mikið af eldsneyti gæti sparast með því að leyfa bílum að taka hægri beygju á rauðu ljósi. Útkoman sýndi fram á að að bílar eyða talsvert miklu eldsneyti þegar þeir eru stopp á rauðu ljósi og því var þetta tekið í gagnið sem sparnaðarráð. Enn í dag er hægribeygja á rauðu ljósi leyfð í flestum fylkjum Bandaríkjanna. Ef rafmagnsbílar hefðu verið notaðir á þessum tíma þá hefði þessi sparnaðaraðferði kannski aldrei komið til, enda eyða rafmagnsbílar nánast engu rafmagni þegar þeir eru stopp.
