Rafmagnsbilar.net mun verða vettvangur fyrir atvinnumenn jafnt sem áhugafólk um rafmagnsbíla til að skiptast á skoðunum og fylgjast með
Ég er áhugamaður um tækni. Fyrir nokkru fór ég að afla mér þekkingar á rafmagnsbílum, enda voru þá margir farnir að tala um þá sem framtíðar fararskjótann okkar.
Það kom mér á óvart hversu langt tæknin var komin. Ég varð enn meira undrandi á því hversu hratt menn eru að yfirstíga þær hindranir sem hingað til hafa sett rafmagnsbíla á lægri stall en brunahreyfilsbílana. Ég komst fljótt að því að rafmagnsbílar eru rétt handan við hornið, tilbúnir að taka við brunahreyfilsbílnum.
Líkt og margir aðrir er ég sannfærður um að rafmagnsbílar verði jafn sjálfsagðir hlutir og sjónvarpstæki eða GSM símar í náinni framtíð. Það verður mjög spennandi að fylgjast með þessari þróun.
Þú getur ráðið miklu um hvernig vefurinn verður!
Vefurinn er enn í þróun en ég ákvað samt að láta hann fara í loftið með eitthvað af efni til prufu. Það kemur miklu meira síðar. Vefurinn á að verða vettvangur fyrir þig sem áhugamann um rafmagnsbíla og tengipunktur við aðra áhugamenn (ég geri ráð fyrir að þú hafir ratað á þennan vef vegna áhuga þíns). Ekki hika við að skrifa athugasemdir við greinarnar ef þér finnst eitthvað óljóst eða þú vilt koma einhverju á framfæri.
Ég er með teljara á vefnum sem sýnir hversu margir skoða vefinn. Ef ég sé að nógu margir eru að koma í heimsókn þá mun ég opna umræðuborð (forum) og kannski fleiri leiðir fyrir fólk til að skiptast á skoðunum og koma efni á framfæri.
Fljótlega mun ég setja upp póstlista sem þú getur skráð á þig til að fá meldingu þegar eitthvað markvert er að gerast á vefnum.
Kjartan S. Þorsteinsson
Kerfisfræðingur
Akranesi
Sendu mér tölvupóst. Powered by Fast and Secure Contact Form
