Sennilega hefur enginn rafmagnsbíll hlotið eins mikla athygli og Tesla Roadster, enda er hún verðskulduð.
Með Tesla Roadster var brotið blað í 160 um ára sögu rafmagnsbílsins þegar loksins tókst að koma í framleiðslu og almenna sölu rafmagnsbíl sem kemst á milli þéttbýlisstaða án þess að tæma rafhlöðuna, er samt hraðskreiður og í ofanálag mjög flottur útlits.
Roadsterinn skipar sér í raðir snörpustu sportbíla með upptakshraða 0-100 Km/klst. undir 4 sekúndum. Hámarkshraðinn er þó “aðeins” 201 Km/klst en því er stjórnað með rafeindabúnaði. Það mætti þó segja mér að rafhlöðurnar sem hann notar í dag séu þar líka takmarkandi þáttur.
Á dögunum ákvað ástralskur eigandi Tesla Roadster að prófa hann í sparakstri. Skemmst er frá að segja að hann komst ásamt einum aðstoðar ökumanni heilan 501 kílómeter á hleðslunni. Það verður að teljast mjög gott í sparakstri á óbreyttum bíl og ótrúlegur árangur á sportbíl.
Sýnið mér óbreyttan sportbíl, með svipaðri snerpu og hámarkshraða og Tesla Roadster, sem ekur 500 Km á tankfylli og ég skal éta hattinn minn með smjeri og salti.
Útlit Tesla Roadster byggir á Lotus Elise. Sjálfsagt á það sinn þátt í háu verði bílsins að skrokkurinn er smíðaður í verksmiðjum Lotus á Bretlandi en mótorinn, rafhlaðan og allt annað er sett í hann í verksmiðju Tesla í Kaliforníu.
Snjallt viðskiptamódel
Verðið á Roadsternum er það eina sem stoppar mann í að biðja um hann í afmælisgjöf frá konunni. Grunnverðið á bílnum, án flottheita á borð við GPS tölvu o.þ.h., er 109 þúsund dollarar. Það gerir litlar 13.407.000 ÍKR á gengi dagsins sem þetta er skrifað og þá á eftir að flytja hann heim og tolla hann.
Það er hluti af viðskiptamódeli Tesla að byrja á svona dýrum og flottum bíl. Þróunarkostnaðurinn er mikill. Aðferð þeirra til brúa þann kostnað er að búa til bíl fyrir markhóp sem hefur efni á að borga fyrir hann. Sá markhópur er ríkir bílaáhugamenn sem eru ekki bara að kaupa flottan sportbíl heldur líka einstakan bíl sem setur mark sitt á bílasöguna. Það trix hefur gengið eftir og Tesla Roadster eigendur njóta um leið athyglinnar sem bíllinn þeirra fær.
Það er líka allt í kringum bílinn sem gerir hann að kosti fyrir ríka og flotta fólkið. Sem dæmi er engin þörf á að fara með bílinn í tékk reglulega í umboðið því Tesla sendir viðhaldsmenn til eigandans þegar kominn er tími á viðhald. Það gerist reyndar ósköp sjaldan því rafmagnsbílar þurfa yfir höfuð afskaplega lítið viðhald.
Síðan er ætlun Tesla að þrepa sig niður í lúxusnum og verðinu og fyrsta skrefið í þeirri átt er Tesla Model S. Verðið á þeim bíl er áætlað í Bandaríkjunum 57.400 dollarar (rúmar 7 milj. ÍKR) og mun hann því keppa við lúxus drossíur á borð við BMW 5. Þegar sá bíll hefur fest sig í sessi er ætlun Tesla að koma með enn ódýrari bíl sem á ekki að kosta meira en 30 þús. dollara (um 3,7 milj. ÍKR). Sá bíll ber vinnheitið Blue Star. Model S bíllinn var með vinnuheitið White Star þegar hann var ennþá á frumstiginu.
