
Tesla Model S
Eitt af því sem aðallega hefur dregið úr áhuga almennings á því að eignast rafmagnsbíl er stutt drægni rafhlaðanna. Það hefur verið staðreyndin hingað til, en Tesla hefur rofið þann múrinn svo um munar.
Önnur helsta hindrunin hefur verið plássið innandyra. Til þess að auka drægni bílanna hafa þeir verið framleiddir eins litlir og léttir og mögulegt er. Það hefur komið niður á bæði stærðinni og ekki síst útlitinu.
Krafa neytandans hefur því verið: “Smíðið rafmagnsbíl sem er rúmgóður, kemst á milli þéttbýlisstaða án þess að tæma rafhlöðurnar og fær ekki Ásgeir Kolbeins til að gubba“.
Svar Tesla við þessum kröfum er S módelið sem er væntanlegt á göturnar 2011. Eins og aðrir flestir væntanlegir rafbílar nýtur hann þess að drif- og vélarbúnaðurinn er lítill og plássið innandyra er því meira. Hann er sagður sjö manna bíll en þegar lengra er lesið kemur reyndar í ljós að hann er búinn fimm sætum fyrir fullorðna og tveimur hliðarvísandi barnasætum (líkt og í Nissan Patrol). Það er samt engan veginn slæmt og með því að fella niður litlu sætin mætti auðveldlega koma fjallahjóli í skottið og svo er aukaskott undir húddinu. Hver þarf meira pláss en það?
Hægt verður að fá S bílinn með þrenns konar rafhlöðum sem endast 257, 370 eða 482 Km á hleðslunni. Hraðhleðsla tekur 45 mín. en þá er líklega átt við minnstu rafhlöðuna. Samkvæmt óljósum fréttum á útskipting á rafhlöðu að vera mjög þægileg og á ekki að taka lengur en 5 mínútur. Ávinningurinn af því verður kannski sá að hægt verði að renna inn á þjónustustöð og skipta rafhlöðunni út á 5 mínútum í stað þess að bíða í þrjú korter eftir hleðslunni.
Lúxus bíll í topp skala

Smekklegur frá öllum hliðum séð. Hvolfþakið nýtur sín vel.
Hvað útlit og gæði varðar virðist S módelið skipa sér í raðir með lúxus fjölskyldubílum á borði við BMW og Benz. Fyrst má nefnið aflið. Mótorinn er 300 Kw, sem gerir rétt rúmlega 400 hestöfl og upptak frá 0-100 km/klst er undir 6 sekúndum. Ekki gleyma heldur að rafmagnsbílar eru með stöðugt og jafnt kraftvægi (tourque) og óháð gírum eða skiptingu, enda ekki um neina gíra eða skiptingar að ræða. Þessi drossía á því án efa eftir að geta klínt manni vel aftur í sætin.
Bíllinn verður búinn tölvu með 17″ snertiskjá og 3G Internet tengingu. Í tölvunni er einnig viðmót þar sem maður fær margs kyns upplýsingar um ástand bílsins. Hægt verður að fá gler-hvolfþak (e. panoramic roof) og hurðarhúnarnir dragast inn til að minnka loftmótstöðu.
