
Reva nxr
Reva hefur betrumbætt útlit bílsins þeirra svo um munar og auk þess er hann stærri og rúmbetri. Með öðrum orðum þá hverfur hann manni ekki lengur úr augsýn ef Toyota Yaris er lagt við hlið hans. Einnig er í smíðum sportlegri útgáfa sem kallast nxg.
Varahleðsla í neyð
Nýji Reva bíllinn er hlaðinn mörgum tækninýjungum sem gerir hann bæði þægilegri og skemmtilegri í allri umgengni. Margir eru hikandi við að skipta úr brunahreyfilsbíl yfir í rafmagnsbíl því þeir eru hræddir um að verða rafmagnslausir. Það væri lítið gaman ef bíllinn stoppar á Miklubraut í Reykjavík á háannatíma og eina leiðin til að koma rafmagni á hann væri að láta toga hann að næstu innstungu. Reva svarar þessu vandamáli á einfaldan máta með því að vera með smá varaorku tilbúna í bílnum. Til þess að losa um þessa varaorku getur þú hringt í þjónustuaðila eða sent SMS. Hann sendir skilaboð til bílsins og þú kemst heim.
Spjallað við bílinn
Myndband: Prufuakstur í Frankfurt
-
Notkun: borgarbíll/smábíll
-
Drægni á hleðslu: 160 Km
-
Hámarkshraði: 130 Km/klst
-
Hleðslutími: 6 klst. húsrafmagn | 1,5 klst hraðhleðsla | 15 mín hraðhleðsla kemur manni 40 Km
-
Farþegar: 3+ bílstjóri
-
Farangursrými: Ekki upplýsingar
-
Dyrafjöldi: Tvær hliðardyr og skotthleri.
-
Helstu tæknihlutir: Varahleðsla, SMS og tölvupóstsviðmót, lyklalaus.
-
Annað: Fáanlegur með blýsýru-rafgeymum = ódýrari en minni drægni (80 Km) og lægri hámarkshraði (80 Km/klst)

Reykjavík 10. jan. 2010
ég pantaði svona bíl um leið og það voru gerðir samingar um inn fluting á honum.
Til hamingju með nýja bílinn Ólafur! Það verður spennandi að fylgjast með. Hvenær er bíllinn væntanlegur?
Nú bíður maður bara eftir að það verðið skrifað undir pöntnuna, á að gerast í jan. 2010. ég bíð bara rólegur en spentur. með kv. ólafur