Reva nxg

Reva nxg

Reva nxg

Reva heldur áfram að svara kallinu um bætt útlit bílanna sinna og boðar sportlegri útgáfu af nxr bílnum sínum. Þessa buffuðu tveggja sæta blæjubíls útgáfu kalla þeir nxg. Aflið er kannski litlu minna en í nxr bílnum en hann ætti að vera nokkuð léttari og þ.a.l. snarpari. Fyrir vikið er drægnin á hleðslunni líka 40 Km. meiri en í nxr bílnum.

Nxg bíllinn mun koma með sömu skemmtilegu tæknimöguleikana og stóri bróðir hans nxr, svosem SMS og tölvupóstssamskipti. Þú getur lesið um það á þessari síðu.  Á meðal annarra aukahluta má nefna  leðursæti og álfelgur. Að auki er hann búinn bakkmyndavél. Slíkt ætti að vera skyldubúnaður í sportbílum enda eru þeir flest allir hannaðir með litla baksýnisspegla og litla afturrúður sem erfitt er að sjá nokkuð út um.

  • Notkun: sportbíll
  • Drægni á hleðslu: 200 Km
  • Hámarkshraði: 130 Km/klst
  • Hleðslutími: Ekki upplýsingar, en varla meiri en í nxr
  • Farþegar: 1 + bílstjóri
  • Farangursrými: Ekki upplýsingar en eflaust ekki mikið
  • Dyrafjöldi: Tvær hliðardyr og lítill skotthleri
  • Helstu tæknihlutir: SMS og tölvupóstsviðmót, lyklalaus. Sjálfsagt líka með varahleðslu
  • Annað: Álfelgur, leðursæti, bakkmyndavél

Heimasíða Reva

Leggja orð í belg

 

 

 

Hægt er að nota þessi þessi HTML tög

<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>