
Phoenix SUV
Eins og áður hefur verið nefnt í umfjöllun um SUT bílinn þá notar Phoenix sérþróaðar lithium rafhlöður sem þeir kalla NanoSafe. Þær gera kleift að hlaða bílinn á aðeins 10 mínútum og fullyrt er að ending þeirra sé meiri en 12 ár eða 250 þúsund hleðslur. Þær þola mikinn kulda án þess að tapa hleðslu (þ.e. rýmd). Hliðarafurð þeirrar tækni er aukið öryggi sem kemur í veg fyrir sprengihættuna sem hingað til hefur plagað liþíum-jónarafhlöður. Með því að fjarlægja grafít og kolefnisþætti í rafhlöðunni er sprengihættan úr sögunni.
SUV jepplingurinn kemur í fjórum útgáfum eftir því hversu mikið af þægindum og aukahlutum er í þá lagt, Standard, Fleet, Premium og Luxury. Allar fjórar útgáfurnar eru með sem staðalbúnað loftkælingu, hita í sætum, álfelgur og og nándarskynjara á læsingum sem kemur í stað lykils. Þegar í dýrari útgáfurnar er komið bætast við hlutir á borð við bakkskynjara, GPS leiðsögutæki, leðursæti og meira af slíkum hlutum sem gleðja mann við aksturinn.
Fyrst um sinn einblínir Phoenix á bílaleigubílamarkaðinn. Þeir fullyrða að bílaleigur geti náð fram miklum sparnaði með því að bjóða upp á rafmagnsbíla enda er viðhaldskostnaður þeirra aðeins brot af því sem þekkist í hefðbundnum brunahreyfilsbílum.
Kynning á bílasýningu
-
Notkun: fjölskyldubíll/jepplingur
-
Drægni á hleðslu: 200 Km
-
Hámarkshraði: 152 Km/klst
-
Snerpa 0-100 km/klst: undir 10 sek.
-
Hleðslutími: 5-6 klst á 220V eða um 10 mín með 250Kw hleðslutæki
-
Farþegar: 4 + bílstjóri
-
Farangursrými: Ekki upplýsingar. Miðstærð af jepplingi.
-
Dyrafjöldi: 5
-
Helstu tæknihlutir: Lyklalaus (nándarskynjari), loftkæling, rafdrifnar rúður
-
Annað: Hægt að velja útgáfur með mismunandi aukahluti og þægindi.
