
Phoenix SUT
Phoenix er fyrirtæki sem líkt og Tesla sérhæfir sig í þróun og framleiðslu rafmagnsbíla en hefur enga hefbundna brunahreyfilsbíla eða tvinnbíla á boðstólum. Líkt og Tesla gerir með Roadster bílinn láta þeir framleiða skrokk bílsins fyrir sig hjá reyndum bílaframleiðanda en einbeita sér að rafmagnshlutanum sjálfir.
Phoenix nota lithium rafhlöður sem þeir kalla NanoSafe. Þeir hafa þróað þær með ákveðinni tækni og náð hleðslutímanm niður í um 10 mínútur með því að nota hraðhleðslu og ending þeirra er sögð 12 ár eða 250 þús. hleðslur. Þær þola bæði mikinn hita og mikinn kulda og tapa því ekki hleðslunni í kulda (þ.e. rýmd). Hliðarafurð NanoSafe tækninnar er aukið öryggi sem kemur í veg fyrir sprengihættuna sem hingað til hefur plagað liþíum-jónarafhlöður. Með því að fjarlægja grafít og kolefnisþætti í rafhlöðunni er sprengihættan úr sögunni.
Boðið er upp á tvenns konar bíla, SUV jepplinginn og SUT pallbílinn sem hér er fjallað um. Hægt er að velja um margar mismunandi útgáfur sem eru mismikið hlaðnar aukahlutum og þægindum, í anda amerískra bíla, á borð við leðursæti, álfelgur, tölvu með Internettengingu, GPS leiðsögutæki og margt fleira.
Fyrst um sinn einblínir Phoenix á bílaleigubílamarkaðinn. Þeir fullyrða að bílaleigur geti náð fram miklum sparnaði með því að bjóða upp á rafmagnsbíla enda er viðhaldskostnaður þeirra aðeins brot af því sem þekkist í hefðbundnum brunahreyfilsbílum.
Prufuakstur á SUT
-
Notkun: Pallbíll / fjölskyldubíll
-
Drægni á hleðslu: 200 Km
-
Hámarkshraði: 152 Km/klst
-
Snerpa 0-100 km/klst: undir 10 sek.
-
Hleðslutími: 5-6 klst á 220V eða um 10 mín með 250Kw hleðslutæki
-
Farþegar: 4 + bílstjóri
-
Farangursrými: Ber 435 Kg. Aðrar upplýsingar hef ég ekki.
-
Dyrafjöldi: 4
- Helstu tæknihlutir: Lyklalaus (nándarskynjari), loftkæling, rafdrifnar rúður
-
Annað: Hægt að velja útgáfur með mismunandi aukahluti og þægindi.
