Peugeot BB1

Peugeot BB1

Peugeot BB1

Við fyrstu sýn virðist Peugeot BB1 vera aðeins enn einn skrýtinn hugmyndabíllinn. Hann er vissulega skrítinn útlits og hugmyndin er bæði frumleg og áhugaverð. Þeir hjá Peugeot tala um að þessi bíll sé afkvæmi smábíls og skellinöðru og það er kannski best að lýsa honum þannig.  En það er meira í pakkanum en bara einhvers konar skrítin erfðafræði.

Hér er á ferðinni borgarbíll í húð og hár, gerður fyrir unga fólkið í stórborginni. Markhópur Peugeot er ekki síst “vespukynslóðin”, þ.e. fólk sem kýs létt og nett farartæki til að smeygja sér leið í gegnum umferðarþvögur og um leið spara eldsneytiskostnað og menga umhverfið sitt minna. En skellinaðra er ekki alltaf þægilegasti fararskjótinn. Farþegafjöldinn takmarkast við hámark einn mann, farangursrýmið er nánast ekkert og svo er heldur ekkert sem ver mann fyrir veðrum og vindum. BB1 er nokkurs konar milliskref á milli skellinöðrunnar og bílsins sem bætir út þessum vanköntum.

Þessi bíll er aðeins hálfum meter lengri en rúmið mitt en samt er hann með pláss fyrir fjóra og 160 lítra farangurshólf. Hvernig má það vera? Til þess að nýta plássið sem allra best er setið klofvega á nokkurs konar mótorhjólasætum, einn farþegi aftan við hinn. Með því að hafa öll stjórntækin í stýrinu er losað pláss í gólfinu fyrir framan ökumanninn sem annars færi í pedala. Eins og í mörgum rafmagnsbílum eru mótorar í hjólunum, í þessu tilviki einn í hvoru afturhjóli, og það sparar vitaskuld pláss sem færi annars í miðjumótor og drifbúnaðinn.

Gluggarnir eru stórir og gler í meirihluta þaksins. Á þakinu eru sólarsellur sem sjá um að auka við hleðslu bílsins þegar sú gula lætur sjá sig. Megin hlutverk þeirra eru þó að knýja mengunarsíur sem sía borgarmengunina úr útiloftinu.

BB1 er ekki með neina baksýnisspegla heldur er hann með örsmáar bakmyndvélar og inni í bílnum er lítill skjár sínu hvoru megin við mælaborðið sem sýna hvað er á seyði fyrir aftan bílinn. Hvers vegna? Það er mér hulin ráðgáta að öðru leyti en því að Peugeot hafi fundist það vera svalt.

  • Notkun: Smábíll/borgarbíll
  • Drægni á hleðslu: 120 Km
  • Hámarkshraði: 90 Km/klst
  • Hleðslutími: Ekki upplýsingar
  • Farþegar: 3 + bílstjóri
  • Farangursrými: 160 lítrar
  • Dyrafjöldi: Tvær hliðardyr og skotthleri
  • Helstu tæknihlutir: Internettenging. Tengi fyrir snjallsíma (iPhone o.fl.).  Bakmyndavélar. Mengunarsíur.
  • Annað: Mótorar eru í afturhjólunum.
  • Leggja orð í belg

     

     

     

    Hægt er að nota þessi þessi HTML tög

    <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>