Reva nxr

Þú getur sparað þér tíma framvegis og notað RSS til að fylgjast með færslum á þessum vef. Takk fyrir að líta við!

Reva nxr

Reva nxr

Reva hefur betrumbætt útlit  bílsins þeirra svo um munar og auk þess er hann stærri og rúmbetri. Með öðrum orðum þá hverfur hann manni ekki lengur úr augsýn ef  Toyota Yaris er lagt við hlið hans. Einnig er í smíðum sportlegri útgáfa sem kallast nxg.

Varahleðsla í neyð

Nýji Reva bíllinn er hlaðinn mörgum tækninýjungum sem gerir hann bæði þægilegri og skemmtilegri í allri umgengni. Margir eru hikandi við að skipta úr brunahreyfilsbíl yfir í rafmagnsbíl því þeir eru hræddir um að verða rafmagnslausir. Það væri lítið gaman ef bíllinn stoppar á Miklubraut í Reykjavík á háannatíma og eina leiðin til að koma rafmagni á hann væri að láta toga hann að næstu innstungu. Reva svarar þessu vandamáli á einfaldan máta með því að vera með smá varaorku tilbúna í bílnum. Til þess að losa um þessa varaorku getur þú hringt í þjónustuaðila eða sent SMS. Hann sendir skilaboð til bílsins og þú kemst heim.

Spjallað við bílinn

Um leið og þú, eða öllu heldur bíllykillinn þinn, byrjar að nálgast bílinn þá opnast læsingar á hurðum. Þú þarft ekki einu sinni að ýta á takka. Á meðan þú borðar morgunmatinn á köldum vetrarmorgni getur þú sent honum SMS og t.d. beðið hann að hita sætin og  láta miðstöðina hita bílinn í 22° hita.
Bíllinn getur líka fylgst með ökulagi þínu. Þú getur látið hann senda þér reglulega yfirlit yfir ökulagið þitt og uppástungur um hvernig þú getur náð fram sem bestum sparnaði. Þú getur líka látið hann senda póst ef kominn er tími á viðhaldstékk eða endurnýja tryggingarnar.

Myndband: Prufuakstur í Frankfurt

  • Notkun: borgarbíll/smábíll
  • Drægni á hleðslu: 160 Km
  • Hámarkshraði: 130 Km/klst
  • Hleðslutími: 6 klst. húsrafmagn | 1,5 klst hraðhleðsla | 15 mín hraðhleðsla kemur manni 40 Km
  • Farþegar: 3+ bílstjóri
  • Farangursrými: Ekki upplýsingar
  • Dyrafjöldi: Tvær hliðardyr og skotthleri.
  • Helstu tæknihlutir: Varahleðsla, SMS og tölvupóstsviðmót, lyklalaus.
  • Annað: Fáanlegur með blýsýru-rafgeymum = ódýrari en minni drægni (80 Km) og lægri hámarkshraði (80 Km/klst)
Tenglar

Citroen C-Zero og Peugeot iOn

Citroen C-Zero

Citroen C-Zero

Peugeot iOn

Peugeot iOn

Mitshubishi stendur nú í samstarfi við bæði Citroen og Peugeot við framleiðslu fjögurra sæta rafbíla. Báðir bílarnir eru nánast eins og eru byggðir á i-MiEV bílnum frá Mitshubishi. Peugeot útgáfan heitir iOn og Citroen bíllinn ber nafnið C-Zero. Báðir bílarnir eru væntanlegir á göturnar í Evrópu í árslok 2010.

Um er að ræða lítinn götubíl búinn 47Kw mótor, sem jafngildir um 64 hestöflum á meðal snúningi. Þeir eru búnir lithium-ion rafhlöðu. Full hleðsla tekur sex klukkustundir en hægt er að ná 80% hleðslu á hálftíma með því að nota hraðhleðslu.

Það er athyglisvert að þessir risar skuli taka höndum saman um svona verkefni. Það er samt spurning hvort það sýni að frönsku bílarisarnir séu fyrir alvöru farnir að horfa til rafmagnsbíla sem framtíðarkost eða hvort þeir séu að vinna sér friðþægingu með því að kaupa þessa hönnun frá Mitsubishi?

Mitshubishi i-MiEV
Mitshubishi i-MiEV

Helstu staðtölur allra bílanna þriggja;

  • Mótor: 47Kw (64hö)
  • Rafhlaða:  Lithium-ion 330 volt
  • Ending hleðslu: um 130 Km
  • Upptak: 0-100 Km/klst á 15 sek
  • Hámarks hraði: 130 Km/klst
  • Farþegar: 3 + bílstjóri
  • Farangursrými: 166 ltr

Tesla Model S

Tesla Model S

Tesla Model S

Eitt af því sem aðallega hefur dregið úr áhuga almennings á því að eignast rafmagnsbíl er stutt drægni rafhlaðanna. Það hefur verið staðreyndin hingað til, en Tesla hefur rofið þann múrinn svo um munar.

Önnur helsta hindrunin hefur verið plássið innandyra. Til þess að auka drægni bílanna hafa þeir verið framleiddir eins litlir og léttir og mögulegt er. Það hefur komið niður á bæði stærðinni og ekki síst útlitinu.

Krafa neytandans hefur því verið: “Smíðið rafmagnsbíl sem er rúmgóður, kemst á milli þéttbýlisstaða án þess að tæma rafhlöðurnar og fær ekki Ásgeir Kolbeins til að gubba“.

Svar Tesla við þessum kröfum er S módelið sem er væntanlegt á göturnar 2011. Eins og aðrir flestir væntanlegir rafbílar nýtur hann þess að drif- og vélarbúnaðurinn er lítill og plássið innandyra er því meira. Hann er sagður sjö manna bíll en þegar lengra er lesið kemur reyndar í ljós að hann er búinn fimm sætum fyrir fullorðna og tveimur hliðarvísandi barnasætum (líkt og í Nissan Patrol). Það er samt engan veginn slæmt og með því að fella niður litlu sætin mætti auðveldlega koma fjallahjóli í skottið og svo er aukaskott undir húddinu. Hver þarf meira pláss en það?

Hægt verður að fá S bílinn með þrenns konar rafhlöðum sem endast 257, 370 eða 482 Km á hleðslunni. Hraðhleðsla tekur 45 mín. en þá er líklega átt við minnstu rafhlöðuna. Samkvæmt óljósum fréttum á útskipting á rafhlöðu að vera mjög þægileg og á ekki að taka lengur en 5 mínútur. Ávinningurinn af því verður kannski sá að hægt verði að renna inn á þjónustustöð og skipta rafhlöðunni út á 5 mínútum í stað þess að bíða í þrjú korter eftir hleðslunni.

Lúxus bíll í topp skala

Smekklegur frá öllum hliðum séð. Hvolfþakið nýtur sín vel.

Smekklegur frá öllum hliðum séð. Hvolfþakið nýtur sín vel.

Hvað útlit og gæði varðar virðist S módelið skipa sér í raðir með lúxus fjölskyldubílum á borði við  BMW og Benz. Fyrst má nefnið aflið. Mótorinn er 300 Kw, sem gerir rétt rúmlega 400 hestöfl og upptak frá 0-100 km/klst er undir 6 sekúndum. Ekki gleyma heldur að rafmagnsbílar eru með stöðugt og jafnt kraftvægi (tourque) og óháð gírum eða skiptingu, enda ekki um neina gíra eða skiptingar að ræða. Þessi drossía á því án efa eftir að geta klínt manni vel aftur í sætin.

Bíllinn verður búinn tölvu með 17″ snertiskjá og 3G Internet tengingu. Í tölvunni er einnig viðmót þar sem maður fær margs kyns upplýsingar um ástand bílsins. Hægt verður að fá gler-hvolfþak (e. panoramic roof) og hurðarhúnarnir dragast inn til að minnka loftmótstöðu.

  • Notkun: Fjölskyldubíll / lúxusbíll
  • Drægni á hleðslu: 257, 370 eða 482 Km
  • Hámarkshraði: Ekki upplýsingar en upptak 0-100 er < 6 sek.
  • Hleðslutími: 3-5 klst húsrafmagn | 80% hleðsla á 45 mín. með hraðhleðslu
  • Farþegar: 5 + 2 börn
  • Farangursrými: Ekki upplýsingar um lítrafjölda en verður heilmikið
  • Dyrafjöldi: Fjórar hliðardyr og skotthleri
  • Helstu tæknihlutir: Tölva með snertiskjá, 3G Internetsamband
  • Annað: 21″ low-profile dekk
  • Vefsvæði Tesla Model S

    PDF sölubæklingur

    Liþíum-jóna rafhlöður á mannamáli

    Rafhlaðan er í botni bílsins. Það sparar pláss og færir þyngdarpunktinn neðar.

    Þeir rafmagnsbílar sem verið er að þróa í dag eru flestir með liþíum-jóna rafhlöður (lithium-ion). Það eru sams konar rafhlöður og eru í farsímum og fartölvum. Þróun liþíum rafhlaðna hefur hingað til verið sniðin að litlum og léttum rafmagnstækjum sem draga til sín lítinn straum á mjög lágri spennu. Rafmagnsbílar þurfa hærri spennu og straum og notkunin er að mörgu leyti öðruvísi.

    Helsti kostur liþíum-jóna rafhlaðanna er hversu léttar þær eru. Eða m.ö.o. hversu mikla orku er hægt að geyma í þeim á hvert kíló sem þær vega. Einmitt þess vegna henta þær svona vel í létt rafmagnstæki. Þær geta geymt a.m.k. sex sinnum meiri orku en venjulegu blýsýru rafgeymarnir sem við þekkjum í bílunum okkar í dag. Helsti ókosturinn er hversu þær eru dýrar. Verðið ræðst ekki síst af því að þær eru tæknilega flóknar.

    Í hverri liþíum-jóna rafhlöðu er búnaður sem fylgist með hita rafhlöðunnar og hleðslunni. Þetta er nauðsynlegt því ef rafhlaðan tæmist alveg þá skemmist hún og ef hún ofhitnar þá gæti hreinlega kviknað í henni.

    Liþíum-jóna rafhlöður hafa marga kosti fyrir utan að vera léttar og meðfærilegar:

    • Ekki þarf að tæma þær alveg áður en þær eru hlaðnar aftur. Það myndast enginn svokallaður “falskur botn” í þeim eins og gerist í mörgum öðrum tegundum af endurhlaðanlegum batteríum.
    • Þær halda hleðslunni betur en flestar aðrar rafhlöður. M.ö.o. þá er rýrnun orkunnar þegar rafhlaðan stendur ónotuð mjög lítil.
    • Þær endast vel og þola mjög margar endurhleðslur.

    Stærsti galli liþíum-jóna rafhlöðunnar er kannski sá að þær hafa hingað til enst illa. Með hverri hleðslu minnka afköst liþíum-jóna rafhlaða. Þróun tækni sem gerir þær endingarbetri lofar hins vegar góðu og búast má við að rahlöður í bíla sem framleiddar verða á næstunni muni endast í 7-10 ár.

    Eins og aðrar hleðslurafhlöður þá tekur alltaf einhvern tíma að endurhlaða þær. Það getur tekið nokkrar klukkustundir að hlaða rafmagnsbíl með venjulegu 230 volta húsrafmagni en þó mun styttri tíma með hraðhleðslu, sem farið er að bjóða upp á í dag.

    Þróun rafhlaðanna í þá átt að gera þær endingarbetri og með styttri hleðslutíma er mjög hröð. Verið er að prófa alls kyns tækni, meðal annars nanótækni. Vísindamenn við MIT háskólann í Bandaríkjunum hafa fundið upp tækni sem minnkar hleðslutímann úr nokkrum klukkustundum niður í aðeins örfáar sekúndur. Þeir telja að þessi tækni verði komin á markað fyrir árið 2012.

    Sprengihætta af liþíum-jóna rafhlöðum

    Undanfarin ár hafa nokkrir framleiðendur þurft að innkalla liþíum-jóna rafhlöður sökum tilvika þar sem þær yfirhitnuðu og sprungu í tætlur. Hvernig er þá með sprengihættuna í rafmagnsbílum? Maður skyldi ætla að menn hafi hugsað fyrir því og það er raunin. Þar fara menn ólíkar leiðir við að tryggja öryggið.

    Sem dæmi má nefna er Tesla Roadster bíllinn er með 6831 rafhlöðu í bílnum og hver einasta sella í rafhlöðunni er vel einangruð. Þannig er skaðinn sem yrði af því að sella í rafhlöðunni springi ekki meiri heldur en ef öryggi springur í venjulegu 12 volta rafkerfi þeirra bíla sem við notum í dag. Phoenix bílarnir eru með rafhlöður sem þeir kalla NanoSafe. Í þeim eru grafít- og kolefnishlutarnir fjarlægðir með og þar með eru þeir hlutir sem valda sprengihættu ekki lengur með.