Mitsubishi i-MiEV

Mitshubishi i-MiEV

Mitsubishi er mjög stórt fyrirtæki á sviði raftækni. Hér á landi þekkjum við það kannski einna best í risastórum hlutum á borð við hverflana í Hellisheiðarvirkjun.  En Mitsubishi hefur framleitt og selt rafmagnsbíla á Japansmarkaði síðan 1993. Það ætti því ekki að koma á óvart að þeir ætli sér einnig stóra hluti á rafmagnsbílamarkaðinum.

Mitsubishi i-MiEV hefur verið í þróun í allmörg ár. Fyrstu bílarnir hétu MiEV, þ.e. án “i” forskeytisins. Skammstöfunin stóð fyrir “Mitsubishi In-wheel Electric Vehicle”. Skírskotunin “in-wheel” (e. “í-hjóli”) vísaði til þess að bíllinn var með mótora innbyggða í drifhjólunum. Margir hafa reynt sig við þá tækni en ekki tekist og Mitsubishi virðist hafa gefist upp á því líka því núna er bíllinn með einn miðlægan mótor aftarlega í bílnum.

Bíllinn lofar hins vegar alveg ágætu og sem smábíll eða borgarbíll er hann alveg frambærilegur. Hann á auk þess tvo bræður í Frakklandi hjá Peugeot og Citroen sem hér hefur lítillega verið fjallað um.

  • Mótor: 47Kw (64hö)
  • Rafhlaða:  Lithium-ion 330 volt
  • Ending hleðslu: um 130 Km
  • Upptak: 0-100 Km/klst á 15 sek
  • Hámarks hraði: 130 Km/klst
  • Farþegar: 3 + bílstjóri
  • Farangursrými: 166 ltr

Vefsíða i-MiEV hjá Mitsubishi

Reynsluakstur í erfiðu klifri

1 comment to Mitsubishi i-MiEV

  • Ólafur Hjálmarsson

    Var með Mitsubishi MiEV í láni einn dag
    Þetta er frábær bíll
    En þetta er ekki bíll til að fara á milli Reykjavíkur og Nesjavalla dregur ekki nema ca. 70 km
    En sem bíll innanbæjar er hann frábær, snöggu upp og mjög góður í akstri má segja ótrúlega góður
    Mitt mat – er frábær bíll
    Mínus – fer of stutt á hleðslunni.

Leggja orð í belg

 

 

 

Hægt er að nota þessi þessi HTML tög

<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>