Hugmyndin um að útbúa rafmagnsbíla með mótora úti í hjólunum er ekki ný og hefur verið reynd áður. Það er mikil tæknileg áskorun og flestir hafa hætt við slík áform. Þess vegna hef ég ekki veitt þessari tækni neina sérstaka athygli fyrr en lesandi benti mér á “rafhjólið” sem Michelin er að bauka við.
Hingað til hafa nokkrir bílaframleiðendur reynt að koma rafmótorum út í hjól bíla sinna en ég held ég geti fullyrt að það hafi í öllum tilvikum mistekist. Stóri bíla- og rafmótoraframleiðandinn Mitsubishi lagði mikla vinnu og peninga í þróun MiEV bílsins (Mitsubishi In-wheel Electric Vehicle) sem átti að vera búinn slíkum hjólum en þar var hætt við áformin og bíllinn er nú kominn með miðlægan rafmótor.
Stundum þarf þróun á nýrri tækni að koma úr einhverri allt annarri átt til þess að hún fari að virka. Í þetta sinn kemur þróunin hinu megin frá. Það er ekki bílaframleiðandi að finna upp ”hjólið” heldur dekkjaframleiðandi. Tja því ekki? Það ættu fáir að vita meira um hjól en einmitt dekkjaframleiðendur og Michelin er heldur enginn aukvisi þegar kemur að hátækni.
Active Wheel lofar góðu

Michelin Active Wheel
Kostirnir við það að vera með sjálfstæða mótora í hjólunum eru nokkrir. Í fyrsta lagi sparast mikið pláss og bíllinn verður léttari því ekki er um neinn eiginlegan drifbúnað að ræða. Aflið nýtist líka betur. Það tapast alltaf einhver kraftur við það að flytja aflið úr mótornum, gegnum drifbúnaðinn og út í hjólin, en þegar mótorinn er bókstaflega inni í hjólinu þá er þessi þáttur nánast á núllinu og svörunin því mjög góð. Hvað hönnunarþætti varðar þá opnast óteljandi möguleikar á hönnun rýmisins inni í bílnum.
Tæknina, sem verið hefur í þróun í rúm þrettán ár, kallar Michelin “Active Wheel”. (Ef þú hefur uppástungu að íslenskri þýðingu á þessari tækni þá máttu gjarnan stinga henni að hér fyrir neðan þessa grein). Tveir rafmótorar eru í hjólinu. Annar þeirra þjónar hlutverki drifmótors sem knýr hjólið áfram en hinn knýr fullkomið fjöðrunarkerfi.
Tölva sér um að stjórna aflinu í drifmótorunum og skipta aflinu rétt á milli hjólanna eftir aðstæðum. Ef bíllinn er búinn drifhjólum á öllum fjórum hjólum þá á það að veita einstaklega gott grip og betri stjórnun á bílnum í beygjum og erfiðum aðstæðum.
Michelin fer nýja leið með því að setja ekki bara mótorinn og drifbúnaðinn inní hjólið heldur líka fjöðrunina. Það ætti einnig að skila sér í auknum þægindum í akstri þar sem titringur er drepinn niður áður en hann svo mikið sem berst frá hjólunum yfir í bílinn sjálfan. Fjöðrunin er rafeindastýrð og með svörun upp á þriðju þúsundustu úr sekúndu (heimild autoblog.com).
En mun þetta virka?
Áskorunin við þessa tækni hlýtur alltaf að vera sú að setja flókinn búnað inní hjól sem snýst á ógnarhraða, titringurinn er mikill og ekki þarf að tala mikið um hvernig óhreinindi og bleyta fer með þannig búnað að öllu óbreyttu.
Nú þegar eru tveir bílar búnir þessum búnaði. Annar þeirra Ventury Volage, brjálæðislega dýr sportbíll sem er framleiddur í Mónakó. Hinn bíllinn er alger andstæða hans, Heuliez Will og kemur á göturnar á þessu ári. Fyrrnefndi bíllinn verður aldrei annað en dollaragrín fyrir miljarðamæringa og verður aldrei fjöldaframleiddur en gaman verður að fylgjast Heuliez Will í framtíðinni. Ég mun fjalla um hann hér síðar.
Þrátt fyrir að þessi tækni virðist lofa góðu þá held ég áfram að vera skeptískur á hana. Myndu svona hjól þola saltpækilinn, umhleypingarnar og slabbið í Reykjavík á veturna? Hvað gerist ef menn keyra á kantstein með tilheyrandi höggi á hjólið? Þolir þessi búnaður virkilega slík átök? Einnig get ég alveg séð fyrir mér að þótt losnað sé við pláss í bílnum, hann verði léttari o.s.frv. þá verði samt alltaf dýrt að framleiða a.m.k. tvo mótora fyrir hvern bíl í stað eins miðjumótors, auk þess sem fjöðrunarkerfið hlýtur að vera dýrara. Eða hvað finnst þér? Segðu þína skoðun hér að neðan.
PDF bæklingur frá Michelin
Ítarleg grein á autoblog.com

Ég er nú þeirrar skoðunar að þetta komi ekki á markað fyrr en þetta verður þrautreynt af þeim. Þá geri ég einmitt ráð fyrir að þeir keyri á kantsteina og annað til að fullvissa sig um að búnaðurinn þoli slíkt. Með því að dreifa drifmóturunum út í hjólin (2 eða 4) næst ótrúlegt pláss sem nýta mætti undir rafgeyma, jafnvel litla ,,ljósavél” sem færi í gang við rafmagnsskort, eins og gert er ráð fyrir í Chevrolet Volt bílnum. Bíð spenntur eftir þessum valkosti og ekki spillir að Heuliez Will er ljómandi laglegur bíll.
Já það verður spennandi að fylgjast með Heuliez Will, þó ekki nema bara fyrir það að þeir ætla að reyna þessa tækni. Virkilega athyglisvert að þeir skuli reyna þetta.
Varðandi það að vera með “ljósavél” í bílnum þá sé ég það alveg fyrir mér sem milliskref, bæði á meðan tæknin er í þróun og fólk er að venjast henni. Sjálfsagt á Voltinn eftir að verða vinsæll einmitt þess vegna.
Eitt sem væri virkilega spennandi væri að setja rafmagnsmótor í fjallajeppa og ég færi reyndar ekki á fjöll í þannig tæki nema með ljósavél, enda fáar innstungur á Kjalvegi svo dæmi sé tekið. Væri það svo galið? Ég meina, það sem fer verst með þessa stóru fjallajeppa er jagið og juðið í snjó og þungu færi. Gæti rafmagnsmótor virkað betur við þannig aðstæður?