Verkfræðingar við MIT háskólann í Bandaríkjunum hafa fundið upp aðferð sem þeir segja að stytti hleðslutíma liþíum-jóna rafhlaða, á borð við þær sem notaðar eru í GSM síma, niður í nokkrar sekúndur í stað margra klukkustunda. Auk þess að stytta hleðslutíma rafmagnsbíla margfalt þá vonast Gerbrand Ceder og Richard P. Simmons, prófessorarnir sem leiða verkefnið, til þess að þessi tækni muni minnka rafhlöðurnar mikið, sem aftur leiði til nýrra möguleika í smátækjum á borð við farsíma o.þ.h. Þar sem þessi tækni er í rauninni ekki eitthvað glænýtt, heldur meira endurhönnun á vel þekktri tækni, þá vonast þeir til þess að hún verði komin á markað innan ársins 1012. Nú þegar hafa tvö ónefnd fyrirtæki keypt leyfið fyrir henni.
Ein aðal ástæða þess að liþíum-jóna rafhlöður eru algengastar í þeim rafmagnsbílum sem eru í þróun í dag er einfaldlega sú að þéttleiki þeirra er mikill, þ.e.a.s. hægt er að geyma mikla raforku í þeim á hvert kíló sem rafhlaðan vegur. Léttari bíll kemur manni lengra á hverri hleðslu. Einn af ókostunum við liþíum-jóna rafhlöður er aftur á móti hversu langan tíma tekur að hlaða þær. Þetta þekkja þeir sem eiga GSM síma og fartölvur.
Að sögn MIT verkfræðinganna ætti tæknin þeirra að leysa þetta vandamál algerlega. Það eina sem mun takmarka hleðslutímann verði einfaldlega hversu hratt rafmagnið ferðast úr rafmagnstenglinum. Við getum líkt því við vatn og sagt sem svo að sá sem á tveggja tommu svera vatnslöngu er fljótari að fylla bala af vatni heldur en sá sem á aðeins hálftommu svera slöngu.
Hingað til hafa menn talið ástæðuna fyrir þessum langa hleðslutíma vera þá að liþíum jónirnar væru hægskreiðar. Jónirnar sjá um að bera hleðsluna í gegnum efni rafhlöðunnar og þær væru því flöskuhálsinn. Prófessor Ceder og kollegar hans komust að hinu gagnstæða þegar þeir fóru að reikna út hraða liþíum jóna. Þær ættu að vera mun hraðskreiðari en talið væri. Tæknin sem þeir fundu upp byggist á nokkurs konar göngum sem jónirnar geta ferðast í gegnum og þá eykst hraði þeirra margfalt. Þeir hafa nú þegar smíðað tilraunarafhlöður sem lofa mjög góðu.
