
Citroen C-Zero

Peugeot iOn
Mitshubishi stendur nú í samstarfi við bæði Citroen og Peugeot við framleiðslu fjögurra sæta rafbíla. Báðir bílarnir eru nánast eins og eru byggðir á i-MiEV bílnum frá Mitshubishi. Peugeot útgáfan heitir iOn og Citroen bíllinn ber nafnið C-Zero. Báðir bílarnir eru væntanlegir á göturnar í Evrópu í árslok 2010.
Um er að ræða lítinn götubíl búinn 47Kw mótor, sem jafngildir um 64 hestöflum á meðal snúningi. Þeir eru búnir lithium-ion rafhlöðu. Full hleðsla tekur sex klukkustundir en hægt er að ná 80% hleðslu á hálftíma með því að nota hraðhleðslu.
Það er athyglisvert að þessir risar skuli taka höndum saman um svona verkefni. Það er samt spurning hvort það sýni að frönsku bílarisarnir séu fyrir alvöru farnir að horfa til rafmagnsbíla sem framtíðarkost eða hvort þeir séu að vinna sér friðþægingu með því að kaupa þessa hönnun frá Mitsubishi?

- Mitshubishi i-MiEV
Helstu staðtölur allra bílanna þriggja;
- Mótor: 47Kw (64hö)
- Rafhlaða: Lithium-ion 330 volt
- Ending hleðslu: um 130 Km
- Upptak: 0-100 Km/klst á 15 sek
- Hámarks hraði: 130 Km/klst
- Farþegar: 3 + bílstjóri
- Farangursrými: 166 ltr
