100 ára rafmagnsbíll Jay Leno

Þegar bíllinn var fyrst að koma til sögunnar í lok nítjándu aldar voru rafmagnsbílar vinsælli en brunahreyfilsbílar. Það var aðallega vegna þess að brunahreyfilsbílarnir þurftu gírkassa og þá þurfti að snúa í gang með stórri sveif. Þá var ekki búið að finna upp startarann og gírkassarnir voru hræðilega grófir og erfiðir í meðhöndlun.

Við skulum skoða þennan 100 ára gamla bíl aðeins nánar.


Þegar Leno og frú fara í bíltúra á þessum þá þurfa þau að passa
sig sérstaklega á dádýrum. Þau fælast hann ekki því hann er
hljóðlaus og lyktarlítill.

Bíladellukallinn Jay Leno á a.m.k. þrjá forn-rafmagnsbíla og þetta er sá elsti, Baker rafmagnsbíll frá árinu 1909. Þegar talað er um svona gamla fornbíla þá sér maður oftast fyrir sér þúsundir vinnustunda sem fara í það að gera bílinn upp og koma honum í ökuhæft ástand. Það eina sem þurfti að lagfæra í tilviki þessa bíls Jay Leno voru rafhlöðurnar sem hann skipti út fyrir nýjar. Leno á einnig upprunalegu rafhlöðurnar, hannaðar af Thomas Edison. Þær eru ennþá í lagi og virka ágætlega. Edison fann upp Alkaline rafhlöður sem mátti tæma, þvo, fylla aftur með alakaline og þá var hægt að nota þær aftur og aftur. Af hverju eru Alkaline rafhlöðurnar sem við notum í vasaljósin og barnaleikföngin okkar í dag ekki þannig?

Baker bíllinn var fyrst og fremst frúarbíll. Eins og Leno talar um í þessu myndbandi hér að ofan voru rafmagnsbílar í þá daga meira hannaðir fyrir konurnar af því þeir voru hljóðlátir, þurftu nánast ekkert viðhald og lyktuðu ekki eins illa og brunahreyfilsbílarnir. Það líkaði konunum betur. Þeir komust að vísu ekki eins hratt og brunahreyfilsbílarnir. Þessi Baker bíll fer álíka hratt yfir og traktor. En konunum var nokk sama um það. Þær notuðu rafmagnsbílana sína aðallega til að fara í búðir eða til kirkju á sunnudögum.

Það er spurning hvort bílaframleiðendur ættu að leika sama leikinn í dag og þeir gerðu fyrir rúmum 100 árum, að hanna og markaðssetja rafmagnsbíla fyrir konur? Skyldi það ganga betur?

Leggja orð í belg

 

 

 

Hægt er að nota þessi þessi HTML tög

<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>